Góðan daginn frú mín góð.....

29.05.2008 15:29:36 / unnurgro

Vinna vinna

Það er allt of gott veður úti. Ég þarf að dúsa inni á þessum spítala til klukkan átta og sólin skín bara eins og henni sé borgað fyrir það. Veit hún ekki að ég þarf vinnufrið??
Fimmtudagar eru langir hjá mér alveg eins og hjá verslunarfólki. Tek smá aukavinnu á Gjörgæslu til að reyna að sópa að mér fleiri aurum.
Ég ætla reyndar líka að fara að bera út fréttablaðið í sumar. Djísús hvað ég á eftir að vera rík eftir sumarið........en ekki mjög sólbrún.

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.05.2008 13:16:41 / unnurgro

Ég er vindurinn sem þýtur

Ég hef komist að því að minn prime time til að hlaupa er frekar seint á kvöldin. Ég fór út að hlaupa klukkan níu í gær og ég hljóp sko eins og vindurinn. Í dag kemst ég reyndar varla upp á fimmtu hæð í vinnunni en það er nú lítil fórn þegar maður fær að hlaupa eins og vindurinn.
Jamm, annars er lítið að frétta. Salatið sprettur eins og arfi í gróðurhúsinu en við Guðrún höfum aðeins orðið varar við snigla. Við ætlum að ráðast gegn þeim með bjór í boxi.

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.05.2008 14:48:57 / unnurgro

Long time no blogg.

Jæja þá er maður bara komin í brauðstritið. Ég vinn sem ritari á skurðgangi á Landspítalanum í Fossvogi. Betra en ekkert svosum.

Það merkilegasta sem er að gerast í lífi mínu þessa dagana er að við Gunna systir erum að rækta grænmeti í gróðurhúsinu út í garði. Stórskemmtilegt skal ég ykkur segja.

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.11.2007 21:57:54 / unnurgro

Eplaskífur...namm namm

Reyndu að komast hjá því að kaupa hluti í stað þess að búa þá til. Alheimurinn styður allar frumlegar hugsanir. Hæfileikar þínir blómstra við sköpun ekki eignarétt.

Góð stjörnuspá í dag.

Ég er annars bara enn hér á Guldagergaard að leira eins og vitleysingur. Ég skrapp til Köben um helgina og dúllaði mér með Eika og Emblu. Ég var búin að skrifa um helgina en tölvan át færsluna mína þannig að nú nenni ég ekki að skrifa um hana aftur.

Við vorum með ekta danska hygge hérna í kvöld, með eplaskífur og jólaglögg....úff ég er svo södd.


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.11.2007 12:27:55 / unnurgro

Svefnpurka

Þú vilt ekki bara gera vel, heldur best í heimi. Þú lætur ekki staðar numið fyrr en árangurinn er meiriháttar glæsilegur á alla kanta.

Ég held ég sé ekki nógu metnaðarfull til að láta þessa stjörnuspá rætast.

Ég var annars að brenna í viðarbrennsluofni í nótt þannig að ég er lítið búin að sofa. Ég verð bara svefnpurka í helgarheimsókninni minni hjá Eika og Emblu...hihi.


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 21:42:04 / unnurgro

Skondin spákona!!

Ég verð að segja að stjörnuspáin hjá Mogganum hefur verið ansi skemmtileg upp á síðkastið. Frekar súrrealísk eitthvað. Svona var mín í dag:

Þú gerir þér grein fyrir að með því að þarfnast fólks of mikið, hrekirðu það á brott. Þess vegana ætlaðu að gera sjálfan þig mjög hamingjusaman núna.

Ég er semsagt að vinna í því að gera sjálfa mig mjög hamingjusama núna.....gæti verið að ég reyni það með einhverskonar súkkulaði tengdum atburði.

Ég er annars bara að skapa alveg á fullu núna þannig að hamingjan hlýtur að vella út úr mér. Verkefnið mitt gengur bara alveg ágætlega. Ég er enn að venjast því að það eru engir kennarar lengur og að ég vinn fyrir sjálfa mig. Mér líður svoldið eins og fugli sem hefur nýlega verið sleppt úr búri.....ekki alveg búin að fatta hvernig á að fljúga utan rimlanna.

Jæja ekki meira í bili. Segi bara eins og nossararnir hérna. Ha det bra.


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 11:51:12 / unnurgro

Network Denmark

Það er búið að setja upp heimasíðu um dvölina hérna á Guldagergaard. Kíkið endilega á hana.

http://www.networkdenmark.blogspot.com/


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.11.2007 21:17:55 / unnurgro

Crap crap crap........

.......ég var búin að skrifa heimsmeistaralega langa færslu hérna og hún datt út....crap crap. Nenni ekki að skrifa hana aftur þannig að ég skrifa bara nokkur stikkorð.

Ég er á Guldagergaard sem er keramikcenter og verð hér næstu sex vikurnar.

Er hér ásamt 13 öðrum nýútskrifuðum keramiklistamönnum frá hinum ýmsu löndum.

Danni er fluttur heim og ég sakna hans.

Er sybbin því við fórum á bar í gær að drekka í okkur jólabjór.

Yfir og út.


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 20:59:30 / unnurgro

Bebbajól

Það eru aftur komin jól í Bebbanum...........annars ekkert að frétta nema að ég var að pakka saman sýningunni okkar í Tistrup í dag. Ég geri lítið annað en að pakka drasli í kassa þessa dagana.


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.10.2007 07:49:56 / unnurgro

Heim í heiðardalinn.

Jæja, þá er það ákveðið. Þann 19. desember flyt ég til Íslands......ja hérna hér.....ævintýrið búið.

Annars er það helst í fréttum að Steve stal ritgerð frá Brandon og skilaði henni í sínu nafni. Þetta komst auðvitað allt upp og nú lendir Brandon líka í vandræðum, því hann átti í ástarsambandi við konu kennarans sem hann skilaði rigerðinni upprunalega til og nú hefur kennarinn gott tækifæri til að hefna sín. David er komin á geðsjúkrahús með sama sjúkdóm og mamma hans og Donna er náttúrulega hans stoð og stytta í þessu öllu saman.


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 12:11:24 / unnurgro

Eiturgufur.

Líf mitt er greinilega ekki nógu viðburðaríkt þessa dagana til að halda úti heilli heimasíðu um það. Ég er svosum ekki mikið að bardúsa. Við Danni erum byrjuð að pakka og undirbúa flutning. Ég verð að segja að það er frekar skrítin tilfinning að vera að flytja heim. Ég held að heilinn í mér sé ekki alveg búin að meðtaka það. Maður er nú líka orðin svoldið mikið vanur að vera hálf-dani. Ég verð skrítna konan sem segir alltaf hej við alla. Reyndar gæti verið að heilinn í mér sé ekki í súper formi þessa dagana. Ég er nefnilega búin að vera að hjálpa tvem vinkvinudum að koma upp verkstæði, svona til að gera eitthvað af mér í atvinnuleysinu. Við erum búnar að vera að mála gamlar járnhillur með skipamálingu og það er sko "stong stuff". Nokkrar heilasellur kvöddu mig þar.

Jæja en það er best að gefa smá update á Bebbanum. Valerie varð ófrísk eftir giftan mann og heimtaði marga peninga. Annars ætlaði hún að segja eiginkonunni alla söguna. Það endaði nú allt vel. Hún fór í fóstureyðingu og skilaði peningunum eftir að Brandon var búin að smita hana af smá góðmennsku. Kelly var náttúrulega risa tík í þessu öllu saman. Steve og Claire eru byrjuð aftur saman og David erfði fullt af pening eftir afa sinn og varð manískur.

Lifið heil.


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.09.2007 14:52:10 / unnurgro

Labbari

Jæja. Þá erum við búin að opna enn eina sýninguna. Að þessu sinni í Tistup......sem er lengst út í rassgati. Þetta er nú samt flottasta sýningaraðstaða sem við höfum haft. Hátt til lofts, bjart og hvítir veggir. Ég vona að ég nái að selja eitthvað af þessum verkum mínum. Maður fer að verða svoldið þreyttur á verkunum sínum þegar maður er búin að fara á fjórar opnanir....og alltaf endurtekið efni. Að vísu var opnunin í Tistrup rosa flott. Það var haldin opnunarræða og það var spiluð tónlist og voða fínerí. Svo voru listamennirnir (ég og hinir) kallaðir upp og við látin kynna okkur og verkin okkar, og fengum svo vínflösku hver frá safninu. Voða húllumhæ.

Við Danni erum búin að vera göngugarpar síðustu daga. Hann fer með mig í labbitúra á kvöldin, svona til að viðra mig aðeins. Í dag gengum við að myllu sem er hérna um þrjá kílómetra héðan. Þetta var að vísu vatnsmylla og ekki sérlega spennandi, en við fengum þó ágætis labbara.


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 09:52:45 / unnurgro

Hún lifir, hún lifir hún lifir enn...

Já já ég er enn á lífi. Hef bara ekki haft frá miklu að segja undanfarið. Ég gæti nú reyndar sagt ykkur allt um hvað er að gerast í Beverly Hills 90210. Kelly er náttúrulega enn sama tíkin og er nú farin að fylla nebban með kókaíni. Steve komst að því að pabbi hans sem ættleiddi hann er í alvöru, alvöru pabbi hans, sei sei já. Mamma hans Brandons var í einhverri sálarkreppu og skrapp heim frá Japan yfir jólin, en það reddaðist allt saman. Þannig er það nú.

Ég er annars að fara til Tistrup í dag að kíkja á safnið sem við erum að fara að halda næstu sýningu í. Leiter dúds.


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 10:55:21 / unnurgro

Dýrðardagar atvinnuleysis

Jæja ég var að fylla út síðasta eyðublaðið hjá aumingjaskrifstofunni svo nú bíð ég spennt eftir mánaðamótum og býst við að fá feita ávísum með aumingabótunum mínum. Maður hefur ekki lifað fyrr en maður hefur verið á sósíalinum í danaveldi. Kannski ég ætti að gerast fyllibytta og fá mér svona rafknúið sæti líka svo ég passi nú inn í aumingjaskapinn.


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.07.2007 11:13:14 / unnurgro

Kvef á Íslandi.

Jæja, þá er maður mættur á klakann og komin með kvef. Er búin að vera að bardúsa ýmislegt í blíðviðrinu hérna og fæ svo bara kvef. Við erum búin að vera uppí bústað hjá mömmu og pabba að hjálpa til við smíðar. Við erum svo að fara í brúðkaup í dag þannig að ég er bara að rembast við að snýta úr mér horinu. Hm, best að sækja meiri snýtipappír....sei sei.

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10